Íþróttir

Meistarar á leiðinni á Norðurlandameistaramót
Mánudagur 24. nóvember 2014 kl. 14:13

Meistarar á leiðinni á Norðurlandameistaramót

Íslandsmeistarar ÍRB frá Íslandsmótinu í 25 metra laug í sundi, þau: Baldvin Sigmarsson, Þröstur Bjarnason, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir og Íris Ósk Hilmarsdóttir, munu öll keppa á Norðurlandameistaramóti unglinga í Svíþjóð í desember.

Þessir ungu sundmenn syntu mjög vel á Íslandsmótinu á dögunum og voru öll á tímum innan við 2% frá lágmörkum á Heimsmeistaramótið. Allir sundmennirnir fimm eiga Íslandsmet í sínum aldursflokki en það nýjasta er met í Telpnaflokki (13-14 ára) sem Karen Mist Arngeirsdóttir setti í 100 m bringusundi á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Hún synti á 1:11.91 og var þetta í þriðja sinn sem hún bætir metið á þessu ári.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024