Meistarakeppni KKÍ í dag
Meistarakeppni KKÍ fer fram í Toyotahöllinni í Reykjanesbæ í dag. Kl. 16:30 mætast Íslandsmeistarar Keflavíkur og Bikarmeistarar Grindavíkur í kvennaflokki. Í karlaflokki mætast Íslandsmeistarar Keflavíkur og Bikarmeistarar Snæfells og hefst leikur þessara liða kl. 19:15. Körfuboltaunnendur ættu því að fá eitthvað fyrir sinn snúð í dag, en leikirnir eru til styrktar BUGL og því er um að gera og skemmta sér yfir góðum körfuknattleik og styrkja um leið gott málefni.

VF-MYND/JBÓ: Það er oft hart barist í viðureignum Keflavíkur og Snæfells.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				