Bygg
Bygg

Íþróttir

Meiri pressa drífur mig áfram
Fimmtudagur 2. maí 2013 kl. 08:29

Meiri pressa drífur mig áfram

Settur í liðið í fyrra og varð háður

Dagur Funi Brynjarsson er 16 ára keppandi Myllubakkaskóla í Skólahreysti. Hann telur að skólinn hans eigi möguleika á sigri í úrslitum Skólahreysti sem fram fara í kvöld. Hann sér um dýfur og upphífingar fyrir liðið og undanfarið hefur hann verið að æfa þær greinar mikið og stundað lyftingar samhliða.

„Lokakeppnin leggst mjög vel í mig, ekki mikið af stressi í gangi, en jú, það koma tímar þar sem stressið kemur fram.“ Dagur segir að hann verði mjög svekktur ef ég bæti sig ekki í lokakeppninni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hver er eftirlætis íþróttamaðurinn þinn?

Tim Duncan, sá allra besti.

Hvaða tónlist kemur þér í gírinn?

Valdimar.

Hvað færðu þér að borða fyrir Skólahreysti?

Skyr og svo kjúkling.

Áhugamál?

Fótbolti er svona aðal en ég held að það séu ekki margar íþróttir sem ég fylgist ekki með.

Hvernig tilfinning er það að vera í beinni útsendingu í Sjónvarpinu?

Hún er góð, meira áhorf, meiri pressa. Það er það sem drífur mig áfram.

Af hverju tekur þú þátt í skólahreysti?

Ég var eiginlega bara settur í liðið í fyrra og eftir það varð maður bara smá háður þessu.