Bygg
Bygg

Íþróttir

Með sex aðstoðarmanneskjur í auglýsingu hjá Nike
Þriðjudagur 28. febrúar 2017 kl. 08:00

Með sex aðstoðarmanneskjur í auglýsingu hjá Nike

Sara Sigmunds er andlit íþróttarisans í crossfit

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er á góðum samningi hjá íþróttarisanum Nike. Hún er andlit fyrirtækisins í crossfitinu og fer reglulega til útlanda til þess að fara í myndatökur eða leika í auglýsingum. Nú á dögunum dvaldi hún í heila viku í Barcelona við tökur þar sem stjanað var við hana eins og kvikmyndastjörnu. „Það er alveg þannig. Þetta var skrýtið í fyrsta skipti sem ég fór í myndatöku hjá Nike. Ég var með eina manneskju sem reimdi skóna mína. Tvær sáu um hárið á mér. Önnur manneskja sá um að buxurnar mínar væru aldrei krumpaðar. Fimmta manneskjan var að farða mig og sjötta manneskjan sá um að spreyja á mig gervi-svita. Þannig að ég var með sex manneskjur að elta mig um allt. Ég var með mitt eigið hjólhýsi. Ég gat valið hvaða mat sem ég vildi, því yrði bara reddað. Þetta var eiginlega óraunverulegt.“

Sara segir að ferli eins og í Barcelona geti tekið á og að vinnudagar séu langir. Hún sér því ekki fyrir sér að leggja módelstörf fyrir sig. „Ég gæti það aldrei, það er alveg erfitt líf,“ segir hún og hlær.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sara er á samning hjá fimm frekar stórum fyrirtækjum og segist hún fá mikið af tilboðum.
„Mig langar bara ekki í fleiri tilboð. Um leið og þú ert með marga góða samninga þá þarft þú að gefa þér tíma í að fyrir þau fyrirtæki. Ég er á fimm samningum og það er meira en nóg.“

En hvað með peninga? Hversu gott hefur þú það?
„Ég hef það alveg ágætt núna. Það skiptir þó máli að ganga vel á mótum svo ég fái ákveðin laun. Samningapeningar eru ekki það miklir að þú getir sleppt því að keppa á mótum. Ég get þó einbeitt mér að æfingum og þarf ekki að vinna með. Launin eru þó ekki svo góð að ég geti farið og keypt mér nýtt hús og nýjan bíl.“

En sér hún fyrir sér að verða rík af crossfittinu?
„Mér finnst það alltaf vera bara bónus. Það er magnað að vera í svona formi og gera það sem ég elska. Að fá borgað fyrir það er eiginlega draumur. Eins og ég segi þá á ég fimm ár eftir, ég ætla svo að mennta mig og fá góða vinnu en ef ég fæ pening út úr þessum fimm árum þá er ég bara mjög sátt.“

Ítarlegt viðtal Víkurfrétta við Söru má sjá hér að neðan.