Massi með átta Íslandsmeistara og fjögur Íslandsmet
Íslandsmeistaramót í bekkpressu fór fram síðastliðna helgi í húsnæði Kraftlyftingardeild Breiðabliks í Digranesi. Massi átti fjórtán keppendur á mótinu, sjö konur og sjö karla, sem kepptu öll í klassískri bekkpressu án búnaðar.
Keppendur Massa stóðu sig mjög vel og unnu til átta Íslandsmeistaratitla og settu fjögur ný Íslandsmet.
Í opnum flokki voru sjö keppendur frá Massa
Íris Rut Jónsdóttir og Guðrún Kristjana Reynisdóttir kepptu báðar í -63 kg flokki kvenna. Íris varð Íslandsmeistari þegar hún lyfti 80 kg og Guðrún varð í öðru sæti er hún lyfti 57,5 kg sem persónuleg bæting en þess má geta að þetta var aðeins annað mótið hennar.
Hanna Birna Valdimarsdóttir varð Íslandsmeistari í -84 kg flokki kvenna er hún lyfti 62,5 kg.
Sindri Freyr Arnarson varð Íslandsmeistari í -74 kg flokki karla er hann lyfti mest 145 kg. Sindri gerði tilraun til þess að lyfta 153 kg sem hefði verið nýtt Íslandsmet en það gekk því miður ekki upp
Davíð Þór Penalver og Jón Grétar Erlingsson kepptu báðir í -93 kg flokki karla. Davíð Þór varð í öðru sæti með 145 kg en Jón Grétar endaði í fjórða sæti með 130 kg.
Þorvarður Ólafsson mætti aftur á keppnispallinn eftir nokkura ára hlé og gerði tilraun til að lyfta 190 kg í -120 kg flokki karla en það mistókst því miður hjá honum og fékk hann því ekki skráð úrslit á mótinu.
Daníel Patrick Riley var eini keppandinn frá Massa í unglingaflokki (18–23 ára). Hann varð Íslandsmeistari í -74 kg flokki er hann lyfti 117,5 kg.
Í drengjaflokki (14–18 ára) voru tveir keppendur frá Massa og kepptu þeir báðir í -83 kg flokki. Kári Snær Halldórsson varð í öðru sæti með 100 kg og Andri Fannar Aronsson varð Íslandsmeistari og setti nýtt Íslandsmet þegar hann lyfti 130,5 kg.
Massi átti fjóra keppendur í Masters flokki
Þóra Kristín Hjaltadóttir varð Íslandsmeistari í -84 kg flokki kvenna M1. Hún lyfti 70 kg, 75 kg og 85 kg.
Kristbjörg Lilja Gröndal endaði í öðru sæti í +84 kg flokki kvenna M1 er hún lyfti 55 kg og 60 kg.
Elsa Pálsdóttir varð Íslandsmeistari í -76 kg flokki kvenna M3. Hún lyfti 62,5 kg og síðar 68 kg sem var nýtt Íslandsmet í flokknum.
Jónína Guðbjörg Jónsdóttir varð Íslandsmeistari í +84 kg flokki kvenna M3. Hún lyfti 35 kg og 38 kg en báðar lyftur voru nýtt Íslandsmet. Þess má geta að þetta var fyrsta mótið sem Jónína keppir á og verður gaman að fylgjast með henni á næstunni.
Frétt af umfn.is
Heildarúrslit má finna hér á síðu KRAFT
Upptaka af mótinu má finna hér