Bygg
Bygg

Íþróttir

Massi Íslandsmeistarar í kraftlyftingum
Þriðjudagur 28. desember 2010 kl. 12:45

Massi Íslandsmeistarar í kraftlyftingum

Kraftlyftingafélagið Massi varð Íslandsmeistari árið 2010. Félagar Massa unnu öll fjögur stigamótin þetta árið og eru vel að sigrinum komnir. Félagið er undir UMFN og eru margir sem æfa undir félaginu. Félagarnir í Massa kepptu við sterka menn frá öðrum liðum eins og Auðunn Jónsson, sem hefur meðal annars verið sterkasti maður Íslands í flokki undir 105 kg. 2 ár í röð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Þetta er ekki spurning um að vera með sterkasta manninn heldur sterkustu heildina. Þetta er liðakeppni og þarf félagið að standa sig vel í hverjum þyngdarflokki fyrir sig og það skilaði okkur sigri,“ sagði Sturla Ólafsson, en hann hefur verið liðstjóri og þjálfari félagsins. „Við erum með mjög breiðan hóp stráka. Sá yngsti heitir Eyjólfur Herbertsson, aðeins 15 ára og hrikalega öflugur. Sá elsti heitir Stefán Sturla Svavarsson og er fimmtugur á næsta ári. Það er einnig keppt í flokki 70 ára og eldri svo menn geta átt mjög langan feril í kraftlyftingum. Þessi íþrótt styrkir bein og sinar og sá styrkur fer ekkert.“ Sturla segir einnig að lítið sé um meiðsli í þessari íþrótt. Menn togni aðeins af og til en hrista það bara af sér, enda snýst þetta um að hækka sársaukaþröskuldinn þó það geti stundum verið djöfullegt.

Næsta mót sem félagið tekur þátt í er Íslandsmeistaramótið í bekkpressu sem haldið verður á Akranesi 29. janúar á næsta ári. Strákarnir eru strax byrjaðir að undirbúa sig fyrir mótið, en þeir taka 10-12 vikur í að undirbúa sig fyrir svona mót.
Fyrsta Íslandsmótið í kraftlyftingum verðu svo haldið 12. mars í Massa. Sturlu fannst það vera sjálfsagt að byrja árið hjá þeim þar sem þeir séu vel tækjum búnir. „Flest allur búnaður á þessum mótum kemur frá Massa, enda erum við vel búnir. Einnig erum við mörg frá Massa sem störfum á mótunum og leggjum okkur öll fram við að íþróttin verði sterkari,“ sagði Sturla.

Sturla hefur verið með námskeið fyrir 13-16 ára stráka. Á námskeiðinu læra strákarnir mikið um matarræði, hvíld og hvernig skal lyfta lóðum. Ekki má þó byrja að keppa í íþróttinni fyrr en 14 ára. Tveir strákar í þessum aldursflokki unnu báðir sína flokka á seinasta móti fyrir Massa og sagði Sturla það sýna að þessi námskeið væru að skila sínu.

Kraftlyftingafélagið Massi á mikið af Íslandsmetum í kraftlyftingum og á Bjarni Þorleifsson, meðlimur Massa, 5 Íslandsmet en hann kemur úr Vogum. Íslandsmetin má sjá inná heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands.

Texti - Siggi Jóns

-

-