Marko líklega frá út tímabilið eftir vinnuslys
Marko Valdimar Stefánsson, leikmaður Grindavíkur í knattspyrnu, verður líklega ekki meira með í Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa lent í vinnuslysi í dag. Mbl.is greinir frá þessu í dag.
Hann lenti með fótinn í sláttuvél og skarst illa þar sem hnífurinn lenti í tánum þar en hann var við vinnu á nýja tjaldsvæðinu í Grindavík.
Þetta er mikið áfall fyrir Grindvíkurliðið en Marko, sem er 19 ára gamall og sonur aðstoðarþjálfarans Milan Stefán Jankovic, hefur staðið sig virkilega vel en hann hefur leikið í miðvarðastöðunni í undanförnum leikjum og hefur komið við sögu í sjö af átta leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.
VF-MYND/Hilmar Bragi: Marko Valdimar er hér í baráttunni við Njarðvíkinginn Óskar Örn Hauksson.