HSS
HSS

Íþróttir

Marko á láni til Oskarshamns AIK
Þriðjudagur 22. mars 2011 kl. 10:30

Marko á láni til Oskarshamns AIK

Marko Valdimar Stefánsson, varnarmaður Grindvíkinga í fótbolta, hefur gengið til liðs við sænska félagið Oskarshamns AIK á láni fram á haust. Þessu greinir umfg.is frá í dag. Oskarshamns AIK leikur í þriðju deildinni í Svíþjóð sem er fimmta efsta deild, og stefnir á að komast upp í ár.

Marko, sem er tvítugur, hefur leikið nítján deildar og bikarleiki með meistaraflokki Grindavíkur síðan hann steig sín fyrstu skref með liðinu árið 2008. Marko var einnig á láni hjá Njarðvík í fyrstu deildinni hluta tímabils 2008 sem og í fyrra.

umfg.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn