Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

„Markmiðið er að njóta þess að spila“
Föstudagur 4. maí 2018 kl. 06:00

„Markmiðið er að njóta þess að spila“

- „Að mínu mati erum við samkeppnishæfir við önnur lið í deildinni,“ segir Rafn Markús, þjálfari Njarðvíkinga.

Rafn Markús Vilbergsson tók við knattspyrnuliði Njarðvíkur árið 2016 og tryggði Njarðvík sér sæti í Inkasso-deildinni í fyrra en óhætt er að segja að Njarðvík vann aðra deildina með yfirburðum. Rafn segir að staðan á hópnum sé góð og segir einnig að Njarðvík ætli sér að mæta sterkir til leiks og vera áfram í deildinni í haust. Rafn svaraði nokkrum spurningum fyrir Víkurfréttir um undirbúningstímabilið, leikmannahópinn og sumarið.

Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið?
Undirbúningurinn hefur gengið vel, við höfum æft við flottar aðstæður, spilað marga leiki og fórum í góða æfingaferð til Hollands fyrir stuttu. Þannig að menn koma brattir til leiks.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hvernig er staðan á hópnum?
Staðan á hópnum er góð fyrir utan Styrmi Gauta sem á eitthvað í land eftir að hafa meiðst á hné í febrúar. Það hafa verið smávægileg meiðsli hjá nokkrum en allir verða klárir þegar deildin hefst á laugardaginn, auk þess kom Helgi Þór heim um helgina, úr námi frá USA og er hann í feiknaformi. Þannig að við erum enn að styrkjast. 

Hvert er markmið sumarsins?
Það er mikill meðbyr með okkur og mikilvægt að nýta hann vel. Að mínu mati erum við samkeppnishæfir við önnur lið í deildinni og komum vel undirbúnir til leiks. Leikmannahópurinn hefur lagt mjög hart að sér og þeir þekkja hlutverkin sín vel. Við gerum okkur grein fyrir því að enginn leikur verður auðveldur í þessari deild, markmiðið er að njóta þess að spila. Við ætlum okkur að mæta sterkir til leiks og vera áfram í deildinni þegar flautað verður til leiksloka í september.

Ætlið þið að fá fleiri leikmenn áður en leikmannaglugginn lokar?
Það hafa verið minni breytingar á okkar leikmannahópi en hjá flestum liðum í deildinni en við erum ánægðir með okkar stöðu. Við lögðum áherslu á að byggja liðið í sumar á kjarna þeirra leikmanna sem áttu stærstan þátt í árangri liðsins í fyrra og bæta við nokkrum flottum karakterum og sterkum leikmönnum til að bæta liðið, styrkja og stækka leikmannahópinn. Breiddin í hópnum er meiri en í fyrra en við leggjum áfram mikla áherslu á samheldni innan hópsins, en hún var eitt af megineinkennum liðsins síðasta sumar. Það verða ekki miklar breytingar á hópnum fyrir mót.

Ykkur er spáð neðarlega og jafnvel falli í deildinni, hvað finnst ykkur um það?
Spáin hefur í raun engin áhrif á okkur. Stemningin innan leikmannahópsins er mikil þar sem menn hafa mikla trú á eigin getu og liðsins í heild. Við erum meðvitaðir um að þetta verður mjög krefjandi verkefni. Við teljum okkur vera með vel mannaðan hóp sem er tilbúinn að takast á við þær áskoranir sem bíða okkar í deildinni. Við höfum langt mikla áherslu á að koma vel undirbúnir til leiks og afsanna spánna.

Hver er leiðtoginn í hópnum og heldur leikmönnum saman?
Andri Fannar Freysson er fyrirliði Njarðvíkurliðsins og fer fyrir liðinu. Hann ásamt mörgum öðrum gefa mikið af sér og fórna sér fyrir félagana og félagið.

Skiptir stuðningurinn máli?
Fyrir okkur Njarðvíkinga er spennandi sumar framundan og vonandi verður áfram aukning á áhorfendum á Njarðtaksvelli en hún var mikil í fyrra. Með betrum bættri áhorfendaaðstöðu á Njarðtaksvelli verður enn skemmtilegra að mæta á leiki. Ekki skemmir fyrir að leiktímar á okkur heimaleikjum verða mun betri en í fyrra og auðveldara fyrir stuðningsmenn og áhugamenn um knattspyrnu að mæta á völlinn.

Hver er ykkar styrkleiki/veikleiki?
Við mætum vel undirbúnir til leiks. Við erum með öfluga liðsheild og breiðan hóp leikamanna sem eru spenntir að selja sig dýrt og sanna sig í Inkasso-deildinni.