Þriðjudagur 13. júlí 1999 kl. 19:13
MARKASÚPA Í JÓMFRÚARSIGRI UMFG

Kvennalið Grindvíkinga í knattspyrnu fagnaði sínum fyrsta sigri í efstu deild sl. þriðjudagskvöld er Fjölnisstúlkur voru gjörsigraðar 5-0 í Grindavík. Grindvísku stúlkurnar létu strax sverfa til stáls í fyrri hálfleik og skoruðu þrisvar, Petra Rós fyrst síðan Ólína Guðbjörg og loks Sólný Pálsdóttir. Í seinni hálfleiks jafnaðist leikurinn aðeins en þær Petra Rós og Sara Davidson tryggðu fimm marka sigur. „Ég er alveg himinlifandi með sigurinn og þetta er vonandi upphafið að betra gengi. Sigurinn gegn Skagastúlkum í bikarnum skipti sköpum fyrir sjálfstraust liðsins og ágætt að enda fyrri umferðina á þennan hátt.“Ólína fyrsti GrindvíkingurinnÓlína Guðbjörg Viðarsdóttir varð fyrsta landsliðskona Grindvíkinga í knattspyrnu þegar hún lék landsleiki með U-17 á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu í síðustu viku.