Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

María stigahæst í síðasta leik U 18
Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 13:06

María stigahæst í síðasta leik U 18

Íslenska kvennalið U 18 í körfuknattleik hafnaði í 11. sæti í B-deild Evrópukeppninnar sem fram fer á Ítalíu. Ísland beið lægri hlut gegn Írum í dag 63-71 þar sem Keflvíkingurinn María Ben Erlingsdóttir gerði 22 stig og tók 6 fráköst.

Nokkuð jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari sigu þær írsku hægt og bítandi fram úr og íslenska liðið varð að sætta sig við 11. sæti í mótinu.

Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka, gerði 17 stig í leiknum en Keflavíkurmærin Bryndís Guðmundsdóttir setti niður 11 stig.

 

VF-mynd/ [email protected] - María í leik með Keflavík gegn Grindavík á síðustu leiktíð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024