Íþróttir

María Jónsdóttir til Keflavíkur
Mynd: Karfan.is.
Miðvikudagur 16. maí 2018 kl. 10:51

María Jónsdóttir til Keflavíkur

María Jónsdóttir, sem leikið hefur með Njarðvík undanfarin ár hefur ákveðið að leika með Keflavík á næstu leiktíð en Njarðvík féll niður í 1. deildina í vetur. Karfan.is greinir frá þessu. María er uppalin í Keflavík en hún fór til Njarðvíkur 2015 og meðaltal hennar í leik með liðinu var 6,7 stig og 7,3 fráköst.

„Síðasta tímabil var ákveðin vonbrigði enda vil ég meina að Njarðvík hefði átt geta betur miðað við þann mannskap sem var til staðar. Ég átti góðan tíma þar og var vel tekið frá fyrsta degi og vona svo sannarlega að liðið vinni sig fljótt aftur upp í úrvalsdeild þar sem félagið á heima“, sagði María í samtali við Karfan.is.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hún sagði einnig að hún vilji spila áfram í úrvalsdeild og sé farin að hungra í nokkra titla eftir nokkurt hlé. „Ég er líka spennt að vinna með Jóni Guðmunds. sem hefur þjálfað mig áður og hópurinn hjá Keflavík er flottur þar sem virkileg samkeppni verður um stöður innan liðsins, ég fíla það vel og er tilbúin í slaginn. Ég held að pabbi verði heldur ekkert ósáttur við þetta enda grjótharður Keflvíkingur“, sagði María.