Már keppir á EM fatlaðra í sundi
	Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi í 50m laug fer fram í Funchal í Portúgal dagana 1.-7. maí næstkomandi. Ísland sendir fjóra keppendur á mótið, tvo karla og tvær konur. Meðal keppenda verður Már Gunnarsson frá Nes/ÍRB
	
	Keppendur Íslands á EM í Portúgal:
	
	Már Gunnarsson, S12, Nes/ÍRB - 100m skriðsund, 400m skriðsund, 100m baksund og 200m fjórsund.
	
	Jón Margeir Sverrisson, S14, Fjölnir - 200m skriðsund, 100m bringusund og 200m fjórsund.
	
	Thelma Björg Björnsdóttir, S6, ÍFR - 50,100 og 400m skriðsund, 100m bringusund og 200m fjórsund.
	
	Sonja Sigurðardóttir, S4, ÍFR - 50, 100m skriðsund, 50m baksund, 50m bringusund og 150m þrísund.
	
	 Fararstjóri í ferðinni verður Þór Jónsson formaður sundnefndar Íþróttasambands fatlaðra og Kristín Guðmundsdóttir landsliðsþjálfari. Þeim til halds og trausts í ferðinni verða Ragnar Friðbjarnarson þjálfari/sjúkraþjálfari og Helena Hrund Ingimundardóttir þjálfari/aðstoðarmaður.


.jpg) 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				