HSS
HSS

Íþróttir

Magnús í tveggja leikja bann
Miðvikudagur 12. nóvember 2014 kl. 12:44

Magnús í tveggja leikja bann

Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Grindavíkur, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann vegna atviks sem átti sér stað í leik Grindavíkur og KR í Domino's deildinni þann 6. nóvember. Magnús sló þá til Brynjars Björnssonar KR-ings, og var í kjölfarið vísað úr húsi.

Ólafur Ólafsson og Jóhann Árni Ólafsson leikmenn Grindavíkur voru svo áminntir fyrir háttsemi sína í viðureign Stjörnunnar og Grindavíkur þann 23. október síðastliðinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn