Magnús Gunnarsson til Skallagríms
Spilar með Skallagrími gegn Keflavík í kvöld.
Magnús Gunnarsson hefur gengið frá samningi við Skallagrím og mun leika með liðinu út tímabilið í Domino's deildinni. Fyrir skömmu sagði Magnús upp samningi við Grindvíkinga af persónulegum ástæðum, en hann gekk til liðs við bikarmeistarana í sumar. Hann hefur verið að æfa með Borgnesingum að undanförnu og gekk frá samningi við liðið í kvöld. Fyrsti leikur Magnúsar með liðinu verður á gamla heimavellinum, TM-höllinni í Keflavík í kvöld, föstudag kl: 19:15. Þá munu heimamenn jafnframt „frumsýna“ nýja útlenda leikmanninn, Davon Usher en hann kemur í stað Will Graves sem var seldur til Ísrael.
Reykfyllt bakherbergin í Borgarnesi #körfubolti #karfan.is pic.twitter.com/amQ7CCzoiU
— Bjarni Ívar Waage (@bjarniwaage) January 8, 2015