Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Magnús besti dómarinn í síðustu umferðunum
Þriðjudagur 2. október 2007 kl. 18:33

Magnús besti dómarinn í síðustu umferðunum

Knattspyrnudómarinn Magnús Þórisson frá Keflavík var í dag útnefndur besti dómarinn í Landsbankadeild karla fyrir umferðir 13-18. Magnús er vel að útnefningunni kominn en hann hefur sannað það að hann er á meðal albestu knattspyrnudómara þjóðarinnar.

 

Jónas Grani Garðarsson, Framari og markakóngur deildarinnar, var kjörinn besti leikmaðurinn, Willum Þór Þórsson besti þjálfarinn og stuðningsmenn Íslandsmeistara Vals voru bestu stuðningsmennirnir.

 

Lið umferðanna er þannig skipað:

 

Fjalar Þorgeirsson, Fylki

 

Atli Sveinn Þórarinsson, Val

Barry Smith, Val

Dario Cingel, ÍA

Rene Carlsen, Val

 

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, FH

Baldur Aðalsteinsson, Val

Bjarni Guðjónsson, ÍA

Pálmi Rafn Pálmason, ÍA

 

Helgi Sigurðsson, Val

Jónas Grani Garðarsson, Fram

 

VF-Mynd/ Úr safni – Magnús Þórisson er besti dómari umferða 13-18 í Landsbankadeild karla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024