Maggi Júdó sæmdur starfsmerki UMFÍ
Magnús Hauksson var sæmdur starfsmerki UMFÍ á aðalfundi Ungmennafélags Þróttar. Helgi Gunnarsson frá UMFÍ mætti á aðalfund Þróttara og fram kom í máli Helga að Magnús Hauksson, oftast nær kallaður Maggi júdó, hafi haustið 1997 stofnað júdódeild hjá UMFÞ og var hann þjálfari deildarinnar í 17. ár. Það hafa margir Íslandsmeistaratitlar farið í gegnum júdódeild Þróttar og glæsilegir sigrar unnist. Einnig hafi Magnús alið upp marga félagsmenn í röðum Þróttara. Magnús hafi unnið óeigingjarnt starf og verið fórnfús hugsjónamaður í störfum sínum fyrir Ungmennafélagið Þrótt, af því tilefni sé hann sæmdur starfsmerki UMFÍ árið 2016.