Mætum öll í Laugardalinn!
Knattspyrnudeild Keflavíkur vill hvetja alla Suðurnesjamenn til að sýna góðan stuðning í verki og mæta í Laugardalinn í dag kl. 16 og hvetja lið Keflavíkur til sigurs í leik um sæti í úrslitum VISA-bikarsins 2009. Mikill hugur er í strákunum okkar og eru þeir ákveðnir í að selja sig dýrt og tryggja okkur úrslitaleik í byrjun október. En til að svo geti orðið þurfum við að finna fyrir stuðningi okkar frábæra stuðningsfólks og það er ekki spurning að í Dalnum á eftir að hljóma hátt: Áfram Keflavík!
Boðsmiðum fyrir 16 ára og yngri verður dreift í grunnskólum í Reykjanesbæ fyrir helgi. Í anddyri Laugardalsvallar verður Unglingráð svo með sölu á vörum merktum Keflavík svo það geta allir verið bláir á leiknum. Það verður m.a. boðið upp á húfur, boli, K-sólgleraugu, límmiða í bíla o.fl.
Keflvíkingar verða norðanmegin í stúkunni (nær Laugardalslauginni).
Miðaverð á leikinn fyrir 17 ára og eldri er kr. 1.200 og 1.000 fyrir þá sem greiða með Visa. Verð fyrir 11-16 ára er 300 kr. en 10 ára og yngri fá frítt inn. Netsala er á midi.is.
(Tilkynning frá Keflavík).