HSS
HSS

Íþróttir

Mætingin mætti vera betri
Fyrirliðinn Kristrún Ýr er öflug í vörn Keflavíkur. Hér er hún og Elfa Karen Magnúsdóttir að stöðva sóknarmann Vals á síðasta tímabili. VF/JPK
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 15. júní 2023 kl. 16:37

Mætingin mætti vera betri

- Fyrirliði Keflvíkinga vill fá fólk á völlinn

Í fyrsta sinn síðan 2007 leika Keflvíkingar í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna. Þær fá Stjörnuna í heimsókn á HS Orku vellinum en liðin hafa mæst tvisvar í sumar þar sem Stjarnan hefur sigrað báða leikina.

„Ég er gríðarlega spennt fyrir þessum leik, það er langt síðan við fórum svona langt í bikarnum. Ég er spennt fyrir því að taka á móti Stjörnunni og mjög sátt með að fá heimaleik,“ segir Kristrún Ýr Hólm fyrirliði Keflvíkinga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Aðspurð út í mætingu á heimaleiki hjá liðinu það sem af er sumri segir Kristrún að þar sé vissulega pláss fyrir bætingu.

„Ég er auðvitað þakklát þeim sem mæta og styðja okkur en mér finnst að mætingin mætti vera miklu betri en hún hefur verið upp á síðkastið. Ég vonast til þess að sjá fullt af fólki en það er ekkert skemmtilegra en að spila fyrir framan fólk þannig að ég hvet alla til að mæta.

Keflvíkingar sitja í sjöunda sæti deildarinnar og unnu góðan útisigur gegn Þrótturum í síðasta leik. Stjarnan er einu sæti ofar í deildinni.

Aukinn metnaður smitar út frá sér

Í upphafi tímabils sendu fyrirliðar allra liða í Bestu deild kvenna frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að þær töldu hallað á kvennaboltann í umfjöllun og kynningu. „Íslenskur toppfótbolti tók ábyrgð á þessu sem við kunnum virkilega vel að meta en svona mistök eru ekki góð og hvað þá svona ítrekað eins og tilfellið var. Við horfum bara fram á við og vonandi verður þetta miklu betra í framhaldinu,“ segir Kristrún.

Hvernig breytum við þessu viðhorfi? „Ég hugsa að við gerum það með auknum sýnileika og markaðssetningu, þannig metnaður smitar út frá sér og þannig fáum við fólk á völlinn.“

Leikurinn hefst klukkan 20:00 á morgun föstudag. Boðið verður upp á pulsur og Svala á meðan birgðir endast frá klukkan 19:00. Þeir sem skrá sig á Facebook viðburð Knattspyrnudeildar Keflavíkur geta svo unnið 30 þúsund króna inneign í verslun Sport 24.

Viðburður: https://fb.me/e/YSic5OtP