Mætast í fyrsta sinn í 25 ár
Keflavík mætir Víkingum í undanúrslitum VISA bikarkeppninnar í knattspyrnu á Laugardalsvelli þann 28. ágúst næstkomandi en dregið var í hádeginu á Hótel Loftleiðum.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast KR og Þróttur en Þróttarar leika í 1. deild.
Þetta er í fyrsta skipti í 25 ár sem Keflvíkingar mæta Víkingum í bikarkeppni KSÍ og alls í þriðja skiptið sem liðin mætast í bikarkeppni. Árið 1981 vann Keflavík 4-1 í 16 liða úrslitum á Keflavíkurvelli. Magnús Garðarsson skoraði þrennu í leiknum og Óli Þór Magnússon eitt mark. Áður höfðu liðin mæst í 8 liða úrslitum árið 1975 og þá vann Keflavík 2-0 á Melavellinum. Steinar Jóhannsson og Einar Gunnarsson skoruðu fyrir Keflavík í þeim leik.
VF-mynd/ [email protected] - Hallgrímur Jónasson á harðahlaupum fyrir Keflavík gegn Grindavík í gær