Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Maciej Baginski í Ljónagryfjuna á nýjan leik
Sunnudagur 7. maí 2017 kl. 06:45

Maciej Baginski í Ljónagryfjuna á nýjan leik

Logi Gunnarsson og Vilhjálmur Theodór Jónsson hafa framlengt samningana sína við Njarðvík og þá mun Daníel Guðni Guðmundsson stýra liðinu sitt annað tímabil næsta vetur.

Maciej Baginski samdi á föstudaginn á ný við uppeldisfélag sitt Njarðvík eftir eins árs fjarveru en hann lék með Þór Þorlákshöfn síðasta keppnistímabil. Samningurinn er til tveggja ára. Stjórn KKD UMFN fagnar komu Maciej sem mun án nokkurs vafa láta vel til sín taka næsta vetur en hann var með 14,9 stig og 4,1 frákast að meðaltali í leik með Þór á síðustu leiktíð.

Friðrik Pétur Ragnarsson formaður KKD UMFN sagði við ráðninguna að Maciej væri mikilvægt púsl í spili Njarðvíkinga. „Við vitum öll hvers hann er megnugur og fögnum því að fá okkar mann aftur heim í Njarðvík. Línur er að skýrast með leikmannahópinn okkar fyrir komandi tímabil en stjórnin hefur haft nóg fyrir stafni upp á síðkastið.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur heim í Njarðvík. Tími minn hjá Þór var lærdómsríkur en Njarðvík er mitt uppeldisfélag og ég vil fyrir alla muni taka þátt í því að færa félagið í fremstu röð á nýjan leik,“ sagði Maciej Baginski við undirritun samninga í dag.

Logi Gunnarsson og Vilhjálmur Theodór Jónsson hafa framlengt samningana sína við Njarðvík og þá mun Daníel Guðni Guðmundsson stýra liðinu sitt annað tímabil næsta vetur.

Maciej Baginski og Friðrik Pétur Ragnarsson formaður KKD UMFN við samningagerðina