Lýsi áfram framan á búningum Grindavíkur
Fagna 30 ára samstarfsafmæli á næsta ári - Líklega einsdæmi í fótboltaheiminum
Á föstudaginn komu saman nokkrir af helstu stuðningsaðilum knattspyrnunnar í Grindavík og skrifuðu undir áframhaldandi styrktarsamninga. Helsti styrktaraðili Grindavíkur um áratugaskeið er Lýsi hf. en þeir hafa verið framan á búningum knattspyrnuliðs Grindavíkur frá árinu 1984 og verða liðin 30 ár á næsta ári frá því að þessir aðilar hófu samstarf.
Aðeins eitt lið í Evrópu, PSV Eindhoven í Hollandi, hefur haft auglýsingu frá sama fyrirtæki lengur framan á búningum sínum en þeir hafa verið með Philips síðan 1982 (Grindavík og Lýsi frá 1984). PSV stendur fyrir Philips Sport Vereniging og því nátengt fyrirtækinu. Því hlýtur þetta samstarf Grindavíkur og Lýsi að vera algjört einsdæmi í fótboltaheiminum.
Skrifað var undir samning við IceWest, Lýsi, Haustak, Þorbjörn og Vísir og munu þessir samningar styrkja undirstöðuna og rekstur deildarinnar. Það kemur engum á óvart að öll þessi fyrirtæki vinna með sjávarafurðir og tengjast þau öll nokkuð, Lýsi og IceWest vinna mikið með afurðir frá Þorbirni, Vísi og sameiginlegu fyrirtæki þeirra síðastnefndu, Haustaki.
Jón Þorsteinsson hjá Lýsi framlengir samningnum við knattspyrnudeildina. Samstarf Grindavíkur og Lýsis á 30 ára afmæli á næsta ári.
Ingvar Vilhjálmsson eigandi IceWest er hér að skrifa undir ásamt Jónasi Þórhallssyni, formanni knattspyrnudeildar UMFG.
Eiríkur Tómasson frá Þorbirni og Pétur Pálsson frá Vísir hafa alla tíð verið helstu stuðningsaðilar Grindavíkur og engin breyting á því. Þorbjörn og Vísir eru í ýmsu samstarfi og eiga m.a. saman í Haustak fiskþurrkun, sem er styrktaraðili knattspyrnudeildarinnar.
www.umfg.is