Lyn beið afhroð

Í bréfinu sem sent var inn á öll heimili segir m.a.: „Náttúra Reykjanesskagans er einstök á heimsvísu, í skaganum liggja einstök tækifæri til ferðaþjónustu og útivistar. Þar eiga íbúar í Vogum sannkallaða náttúruperlu í bakgarðinum. Myndinni hér til hliðar er ætlað að tjá upplifun náttúruunnenda ef áformin náóhindruð fram að ganga“.
Myndin sem fylgir sýnir kolsvört háspennumöstur með línur á þremur hæðum og Keilir í bakgrunninn. Möstur þessarar tegundar eru hins vegar langt frá þeim raunveruleika sem nú þegar má sjá á Strandarheiðinni.
Ljósmyndari Víkurfrétta myndaði hápsennumöstrin á Fitjum sem eru sömu gerðar og þau sem eru í dag á Strandarheiði og verða sett upp þar í framtíðinni og á þeirri mynd má sjá tvöfalt línustæði.
Raunveruleikinn er því mun látlausari en sú upplifun sem Sól á Suðurnesjum birtir íbúum í Vogum í dag.

Þess vegna spyrja íbúar í Vogum sig nú örugglega í dag hvort „upplifun náttúruunnenda“ af háspennumöstrum með Keili í baksýn hafi verið „hófleg og málefnaleg“.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta liggur þegar fyrir að tvöfalda þurfi Suðurnesjalínuna frá Hafnarfirði og hingað suðureftir. Skiptir þar engu þó álver komi í Helguvík eða ekki. Ört stækkandi byggð og atvinnulíf þurfa meiri raforku og hana þarf að flytja um háspennulínur sem verða að liggja um land Voga.