Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Luku sumrinu með sigri
Þriðjudagur 6. september 2005 kl. 08:43

Luku sumrinu með sigri

Keflavíkurstúlkur sigruðu ÍA í 14. og síðustu umferð Landsbankadeildar kvenna á sunnudag með tveimur mörkum gegn engu. Keflavík hafði tryggt sér áframhaldandi veru í efstu deild að ári en Skagaliðið var þegar fallið í 1.deild.

Heiðursgestir á leiknum voru konur úr fyrsta meistaraflokksliði Keflavíkur og heilsuðu þær upp á leikmenn með formanni kvennaráðs, Reyni Þór Ragnarssyni. Var það sérstaklega ánægjulegt að hafa þær með í síðasta leik sumarsins. Eftir leiki 14. umferðar er ljóst að Keflavík er öruggt með 5. sætið í Landsbankadeild 2005.  Er þessi árangur í samræmi við þær væntingar sem gerðar voru til liðsins í vor. Liðið sigraði í 6 leikjum, tapaði 8, skoraði 31 mark, fékk á sig 35 og endar með 18 stig. ÍBV endaði í 3. sæti með 24 stig og KR í því 4. með 22 stig þannig að Keflavík var ekki langt frá þessum stórliðum í íslenskri kvennaknattspyrnu. Fyrir neðan Keflavík voru Stjarnan með 15 stig, FH með 10 stig og ÍA með 1 stig.

Leikurinn einkenndist af því að liðin höfðu svo sem ekki fyrir miklu að berjast nema þá stoltinu, þarna mættust þau tvö lið sem komu upp í Landsbankadeildina nú í sumar. Skagastúlkur mættu grimmar til leiks og gekk liði Keflavíkur mjög illa að koma einhverri vinnslu í lið sitt.  Fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik, þó átti Birna Aðalsteinsdóttir skot í þverslá Skagaliðsins.

Seinni hálfleikur var þó öllu frískari og náðu Keflavíkurstúlkur að komast betur inn í leikinn. Fyrra mark Keflavíkur skoraði Helena Rós Þórólfsdóttir á 70. mínútu með góðum skalla eftir hornspyrnu. Var þetta mjög vel gert hjá Helenu sem er á yngra ári í 3. flokki. Seinna mark Keflavíkur skoraði Nína Ósk Kristinsdóttir með góðu skoti á 85. mínútu. Keflavík fékk nokkur ágætisfæri til að bæta við mörkum það sem eftir lifði leiks. Markmaður Keflavíkur Steindóra „Dódó“ Steinsdóttir greip vel inn í það sem þurfti að stoppa og var mjög örugg í öllum sínum aðgerðum. Dódó kom til liðs við Keflavíkur seinnipart júlí þegar annar markmaður Keflavíkur hvarf á vit annarra ævintýra. Vill kvennaráð koma á framfæri kærum þökkum fyrir hennar viðbrögð þegar leitað var til hennar í nauð.

VF-myndir/AMG, Hópmynd og texti/keflavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024