Loksins heimasigur hjá Grindavík - Markaregn hjá Keflavík
Grindavík vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild karla þegar liðið bar sigurorð á Þrótti R. 2-1 á Grindavíkurvelli í kvöld. Mörk leiksins voru með skemmtilegra móti en Jóhann Helgason kom Grindvíkingum yfir eftir um 11 mínútna leik en skot hans hafði viðkomu í varnamann Þróttar og endaði í fjærhorninu. Þróttarar jöfnuðu leikinn með marki beint úr hornspyrnu en það var svo Orri Freyr Hjaltalín sem tryggði gulum öll stigin með lukkulegu marki á 36. mínútu.
Á Kópavogsvelli áttust Breiðablik og Keflavík við og er óhætt að segja að þar hafi verið sannkallað markaregn. Leikurinn lyktaði með 4-4 jafntefli þar sem Haukur Ingi Guðnason, Magnús S. Þorsteinsson, Magnús Þ. Matthíasson og Bjarni Hólm Aðalsteinsson skoruðu mörk Keflavíkur.
Nánar verður greint frá leikjum kvöldsins síðar...
VF-MYND/JJK: Orri Freyr Hjaltalín hafði ástæðu til að fagna eftir að hafa skorað annað mark Grindavíkur.