Loksins, loksins...

Í síðari hálfleik voru gestirnir sterkari til að byrja með án þess þó að skapa sér nein færi. Þeir fengu nokkrar aukaspyrnur á hættulegum stað en það var í raun aldrei hætta af þeim. Keflvíkingar vörðust vel og sóttu með stórhættulegum skyndisóknum. Út frá þeim fengu þeir nokkur góð færi sem þeir náðu þó ekki að nýta en besta færið fékk án efa Þórarinn Kristjánsson á 80. mínútu þegar sýndi snilldartilþrif með því að rekja boltann frá eigin vallarhelmingi inn í vítateig Eyjamanna en skotið rataði ekki rétta leið.
Í leik Grindavíkur og Fram voru gestirnir töluvert sterkari aðilinn. Þeir skoruðu strax á 3. mínútu en þar var að verki Ray Jónsson. Um miðjan síðari hálfleik var svo einum Framara vikið af leikvelli fyrir að verja boltann með höndinni og úr vítaspyrnunni skoraði Ólafur Bjarnason og staðan í hálfleik 2-0 fyrir gestunum.
Í síðari hálfleik lögðu Grindvíkingar upp með það að verjast vel og halda hreinu og tókst það. Þeir voru ekki að spila neinn glæsibolta en þetta virkaði og þegar líða tók á leikinn náði Grétar Hjartarson að tryggja þeim sigurinn með þriðja markinu og öryggur sigur raunin.
Grindavík er í 4. sæti deildarinnar með 15 stig en Keflvíkingar eru í því 6. með 14 stig.