Bygg
Bygg

Íþróttir

Lokaumferð í körfunni í kvöld - Keflavík fær Grindavík í heimsókn
Fimmtudagur 10. mars 2011 kl. 08:20

Lokaumferð í körfunni í kvöld - Keflavík fær Grindavík í heimsókn

Í kvöld fer fram lokaumferðin í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Þá ræðst hvernig liðin munu raðast upp í úrslitakeppninni en Suðurnesjaliðin þrjú eru öll örugg með sæti í úrslitakeppninni. Njarðvíkingar fá Tindastól í heimsókn í kvöld en sá leikur er kannski ekki ýkja þýðingarmikill því Njarðvík getur ekki komist ofar né neðar en 7. sæti og Stólarnir eru í því 10. og eiga enga möguleika í úrslitakeppnina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Öllu stærri og mikilvægari leikur fer hins vegar fram við Sunnubrautina í Keflavík þegar heimamenn taka á móti grönnum sínum úr Grindavík. Bæði lið ásamt KR berjast um annað sætið í deildinni en Snæfellingar er nú þegar Deildarmeistarar og öruggir með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni. Nú er kominn tími fyrir alla að koma sér á völlinn enda úrslitakeppnin handan við hornið og spennan mikil í kvöld.

Mynd/vf.is: Hörður Axel Vilhjálmsson blóðugur í leik Keflavíkur og Njarðvíkur fyrr í vetur. Hörður lét skurðinn ekki aftra sér frá því að klára leikinn enda sannur keppnismaður þar á ferð.


EJS