Lokahóf körfunnar í Keflavík haldið á H-Punktinum á sunnudaginn
Lokahóf körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður haldið sunnudaginn 30. apríl. Hátíðin fer fram á H-punktinum í Keflavík og byrjar um 20.00.
Veislustjóri kvölsins er Hrannar Hólm og ýmislegt verður í boði s.s happdrætti og ýmislegt sprell. Léttir grillréttir ásamt meðlæti verða á boðstólnum og tilboð verður á barnum. Einnig verður besti leikmaður, mestu framfarir og lið ársins valið. Bestu leikmenn í fyrra voru valin Magnús Þór Gunnarsson í karlaflokki og Birna Valgarðsdóttir í kvennaflokki.
Mynd: Gunnar Einarsson tekur við verðlaunum fyrir deildarmeistaratitilinn í ár