Lokahóf körfuknattleikdeildar Keflavíkur á morgun
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur heldur lokahóf deildarinnar á morgun í Toyotahöllinni. Húsið opnar kl. 19:00 og verða framreiddar veitingar af Soho veitingum. Meistaraflokkur karla og kvenna sjá um skemmtiatriði ásamt veglegu happdrætti um kvöldið. Veitt verða hin ýmsu verðlaun fyrir tímabilið en veislustjóri kvöldsins er enginn annar en Jón Ben. Miðaverð eru litlar 2.000 kr.
Miðapantanir eru hjá Rúnari í síma 896-2861 og Brynjari í síma 896-5636.