Bygg
Bygg

Íþróttir

Logi við sama heygarðshornið
Laugardagur 19. nóvember 2011 kl. 10:22

Logi við sama heygarðshornið

Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson gerði 28 stig fyrir lið Solna Vikings og tók 4 fráköst í ellefu stiga sigri liðsins á Södertalje Kings 79-68 í sænsku úrvalsdedildinni í körfubolta í gær. Liðið er nú í 7. sæti í sænsku deildinni.

Nýlega skipti lið Solna út einum af lykilmönnum sínum, Stephen Mcdowell, sem var stigahæsti leikmaður deildarinnar vegna þess að liðið þurfti á betri varnarmanni að halda.

Bílakjarninn
Bílakjarninn