Logi valinn í stjörnuleikinn í Svíþjóð
Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson hefur verið valinn í Stjörnuleikinn í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Logi leikur með liði Solna Vikings og mun leika með suðurliðinu en með norðurliðinu leika félagar Loga úr landsliðinu þeir Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson. Logi hefur skorað 18,6 stig að meðaltali í leik og er sjöundi stigahæsti leikmaður deildarinnar þessa stundina.
Í gær var Logi stigahæstur í liði Solna þegar liðið sigraði Uppsala 82 - 75 á heimavelli. Logi gerði 19 stig í leiknum og var sjóðheitur á lokakaflanum þar sem hann skoraði 10 stig og gerði út um leikinn. Þá var hann einnig með 3 fráköst og 1 stolinn bolta í leiknum.