Logi með 22 stig í tapleik
Solna Vikings lið Njarðvíkingsins Loga Gunnarssonar lauk í gær deildarkeppni í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta með tapleik gegn liði Örebro 93-78 á útivelli. Logi var stigahæstur í liði Solna með 22 stig, auk þess stal hann 3 boltum og tók 4 fráköst.
Úrslitakeppnin í Svíþjóð hefst næstkomandi mánudag og mun lið Solna sem hafnaði í 6. sæti mæta Norrköping sem hafnaði í 3. sæti.