Bygg
Bygg

Íþróttir

Ljónynjurnar halda til veiða
Föstudagur 19. október 2007 kl. 09:08

Ljónynjurnar halda til veiða

Njarðvíkurkonur munu í kvöld leika sinn fyrsta körfuboltaleik í tvö ár síðan liðið var lagt niður. Félagið réð Unndór Sigurðsson til sín í sumar sem þjálfara kvennaliðsins og er stefnan sett á að komast í deild þeirra bestu innan þriggja ára.

 

Unndór þjálfaði áður hjá Grindavík en nú eru miklar vonir bundnar við hann í Ljónagryfjunni. Örvar Þór Kristjánsson mun stýra Njarðvíkurliðinu í kvöld þegar KR B kemur í heimsókn kl. 19:15 þar sem Unndór er erlendis.

 

Njarðvík leikur í 1. deild kvenna og mun uppistaðan í liðinu verða leikmenn frá 10. flokki félagsins en leikmenn í þeim flokki hafa m.a. orðið Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Fjórir leikmenn Njarðvíkinga hafa áður leikið með meistaraflokki félagsins en það eru þær Sæunn Sæmundsdóttir sem leikið hefur 74 leiki fyrir Njarðvík. Birna Ýr Skúladóttir, Sigurlaug R. Guðmundsdóttir og Erla Guðmundsdóttir. Þær Anna María Ævarsdóttir og Dísa Edwards hafa gengið til liðs við Njarðvík frá Keflavík.

 

Frítt verður á leikinn í kvöld í boði ÁÁ verktaka að Fitjabakka í Njarðvík.

 

VF-Mynd/ Úr safniSigurlaug Guðmundsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur, í leik gegn Grindavík fyrir tveimur árum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn