Lilja og Gunnar Örn stigahæst á Gullmóti KR

Þessir sundmenn eru allir að keppa í flokkum 12 ára og yngri og 13 – 14 ára. Þau Gunnar Örn og Lilja sigruðu í stigakeppni einstaklinga í drengja og meyjaflokki og Soffía Klemenzdóttir hafnaði í öðru sæti í stigakeppni telpna.
Það var hins vegar nánast undantekning ef að gullverðlaun í flokki 15 ára og eldri höfnuðu hjá íslenskum þátttakendum. Sterkir erlendir þátttakendur frá Svíþjóð, Danmörku og Skotlandi sáu um að hirða flest gullverðlaunin.
ÍRB hafnaði aldrei þessu vant í öðru sæti í stigakeppni liða, það var þó ekki íslenskt sundlið sem sá um að titillinn hafnaði ekki í Reykjanesbæ, heldur hið firnasterka skoska sundlið Warrender sem kemur frá Edinbourgh. ÍRB var með rétt rúmlega helmingi fleiri stig en næsta íslenska lið.