Liðstyrkur til kvennaliðs Njarðvíkur
Kvennalið Njarvíkur í körfuknattleik hefur fengið til liðs við sig nýjan erlendan leikmann en hún heitir Krystal Scott og er leikstjórnandi. Kemur hún í stað Sacha Montgomery sem var látin taka poka sinn fyrir skömmu.Krystal er um 175 cm á hæð og kemur frá háskóla í Norður-Karólínu þar sem hún skoraði 10 stig að meðaltali.