Liðsstyrkur til Þróttara
Knattspyrnulið Þróttar í Vogum hefur fengið Aran Nganpanya til liðs við sig frá Haukum fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Stuðningsmenn Þróttar ættu að kannast vel við Aran sem er frá Vogum og spilaði með okkur Þrótturum árið 2017.
Aran sem er 24 ára á að baki fjölmarga leiki með Haukum í fyrstu deildinni og er þetta góður liðsstyrkur fyrir komandi tímabil.
Aran sem ólst upp í Vogum á að baki leiki fyrir yngri landslið Íslands.