Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Íþróttir

Liðið sem kemur betur undirbúið vinnur
Laugardagur 18. febrúar 2012 kl. 10:04

Liðið sem kemur betur undirbúið vinnur



Sigurður Ingimundarson veit sennilega manna mest um það hvernig sturtuklefarnir í Laugardalshöll líta út en hann hefur vart tölu á hve oft hann hefur farið þangað. Bæði hefur hann farið sem leikmaður og þjálfari og hann er því hokinn af reynslu og þekkir andrúmsloftið í Laugardalshöll öðrum fremur.

„Við breytum lítið út af vananum en þetta er eins og hver annar leikur, að vísu er þessi leikur örlítið stærri en þetta er bara körfuboltaleikur,“ segir Sigurður sallarólegur.

„Þetta snýst aðallega um það að menn einbeiti sér að leiknum og þá erum við í fínum málum,“ segir hann en leikmenn Keflvíkinga hafa ekki margir reynslu af bikarúrslitaleikjum en Sigurður segir það ekki vera mikið mál. „Þetta verður rosalega skemmtilegt og það verður sérstaklega gaman fyrir Tindastólsmenn að koma í fyrsta sinn í Höllina. Þeir munu mæta af fullum krafti. Það munum við klárlega gera líka en þeir eru gott lið og eru búnir að spila vel að undanförnu og unnu flottan sigur gegn KR í undanúrslitum, þannig að þetta er alvöru lið.“

Keflvíkingar hafa eins og áður hefur komið fram sigrað viðureignir þessara liða í vetur en að mati Sigurðar var þar um aðra keppni að ræða. „Við erum ekkert að tala um það hvernig fór síðast. Þetta er bara 50/50 leikur og liðið sem kemur betur undirbúið, vinnur þetta.“

Sigurður er ekki að fara í fyrsta skipti í Laugardalshöll og ef minnið er ekki að bregðast honum þá hefur hann farið 14-15 sinnum, bæði sem leikmaður og þjálfari en Sigurður fór á sínum tíma 6 ár í röð sem þjálfari kvenna og karlaliðs Keflvíkinga í bikarúrslitin. Þetta er alltaf jafn gaman að hans sögn og hann fær alltaf smá fiðring í magann. „Annars væri maður löngu hættur þessu. Þetta er mikil stemning og mesta fjörið sem maður kemst í í körfuboltanum. Það vilja allir komast í þennan leik,“ en Sigurður segir að það sé um að gera að njóta þess og hafa gaman af.

„Það er dálítið langt síðan við vorum í Höllinni og enn lengra síðan við unnum og fyrir okkur er það heil eilífð. Við erum spenntir fyrir þessu og ég hef ekki trú á öðru en að það verði allt morandi af Keflvíkingum í Höllinni,“ sagði Sigurður að lokum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn