Lið Jóhönnu Árnadóttur sigrar í Bændaglímu-púttmótinu
Síðasta utandyrapúttmót sumarsins, Bændaglíman, fór fram fyrr í dag. Keppnin fór hins vegar fram innandyra vegna veðurs.
32 keppendur mættu til leiks og fóru hjónin Jóhanna A. Árnadóttir og Einar Pálmason fyrir liðunum tveimur. Leiknar voru 36 holur og sigraði lið Jóhönnu með 9 holum gegn 7.
Næsta mót er á vegum Félags Áhugamanna um Íþróttir Aldraðra, en það fer fram að Gullsmára í Kópavogi miðvikdaginn 22. sept. Þar koma púttklúbbar víðsvegar að af landinu saman og mun PS senda 3 þriggja manna lið til leiks ásamt þremur varamönnum, en félagið hefur titil að verja á mótinu.
Fyrsta innanfélagsmót PS innanhúss verður haldið í Röstinni þann 7. október.
VF-mynd úr safni