Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Léku einn erfiðasta golfvöll Bandaríkjanna
Feðgarnir og Pétur við viðvörunarskiltið á Bethpage Black.
Laugardagur 25. júní 2022 kl. 09:22

Léku einn erfiðasta golfvöll Bandaríkjanna

„Þessi upplifun var alveg geggjuð og fá að spila völl sem hefur haldið nokkur stórmót eins og US Open, PGA Championship og Fedex Cup Playoffs, tala nú ekki um það að fá að spila á sömu teigum og bestu kylfingar heims,“ segir Sigurður Stefánsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, en hann ásamt þremur öðrum Suðurnesjamönnum léku nýlega  einn þekktasta golfvöll í Bandaríkjunum, Beth­page Black.

Með Sigurði voru synir hans, Stefan Julian og Guðmundur, og félagi hans, Pétur Þór Jaidee. Allt vanir kylfingar enda er ekki mælt með því að menn leiki þennan völl nema að vera þokkalegir í golfi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Bethpage-svæðið sem er á Long Island, nærri New York, er meðal vinsælustu almenningssvæða landsins. Þar eru fimm golfvellir og Svarti völlurinn er þar fremstur en auk hans eru Rauði, Blái, Græni og Guli völlurinn.

„Þessi völlur er mjög erfiður bæði vegna lengdarinnar en hann er 6.850 metrar af meistarateigum en líka hversu hæðóttur hann er og vel varðar flatir með glompum.Völlurinn var í frábæru standi þegar við spiluðum og flatirnar voru eins og teppi,“ sagði Sigurður.

Lengi vel var það frægt að kylfingar vörðu mörgum klukkustundum sofandi í bílnum yfir nótt við völlinn til að komast í röð til að fá teigtíma.

„Nú er hægt að panta rástíma á betapagegolfcourse.com, fyrir almenning eru það fimm dagar fram í tímann en fyrir íbúa New York er það sjö dagar fram í tímann þannig það getur verið erfitt að fá tíma fyrir fjögurra manna holl en fyrir einn eða tvo er það ekkert mál. Við borguðum 100 dollara á mann í vallargjald sem er alls ekki mikið miðað við svona upplifun,“ bætir Sigurður við en hvernig gekk þeim félögum að eiga við þennan erfiða völl?

„Okkur gekk þokkalega, Pétur Jaidee, okkar besti maður var mjög góður, á fimm yfir (76 högg) ég var ellefu yfir og guttarnir voru eitthvað meira.“   

En hver er erfiðasta brautin?

„Erfiðasta holan er klárlega fimmtánda braut, vegna þess að hún er bæði löng, 400 metrar, og með litla, vel varða flöt. 

Klúbbhúsið er mjög fínt og stórt með stórum svölum þar sem maður getur setið úti og horft yfir fyrstu og átjándu holu,“ sagði Sigurður.

Svarti völlurinn er glæsilegur en mjög erfiður.