Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Lék fyrir framan besta leikmann sögunnar
Jón Axel og Stephen Curry.
Laugardagur 16. desember 2017 kl. 08:00

Lék fyrir framan besta leikmann sögunnar

- Michael Jordan sat á áhorfendapöllum Davidson

Grindvíski körfuboltakappinn Jón Axel Guðmundsson hefur verið að gera góða hluti með liði sínu Davidson í bandaríska háskólakörfuboltanum. Hann hefur spilað fyrir framan Michael Jordan og Stephen Curry en hinn síðarnefndi stundaði líka nám og lék körfu með Davidson háskólanum. Jón Axel mun ekki koma til Íslands um jólin vegna körfuboltaleikja en fer þess í stað til Hawaii til að spila í jólamóti.
Tímabilið er ansi langt hjá Jóni Axel og félögum, nokkrir leikir eru búnir af tímabilinu en þeir hafa tapað á móti tveimur liðum sem eru talin vera ein af 25 bestu liðunum í Ameríku í háskólaboltanum. „Við töpuðum einum leik illa og við áttum alls ekki að tapa honum en það gerist stundum, annars er tímabilið okkar langt og strangt og stendur enn yfir. Við höfum mikla möguleika til að sanna okkur og vonandi gerum við það bara.“

Þeir sem þekkja til í körfuboltaheiminum vita að „March Madness“ nýtur mikilla vinsælda vestanhafs en það er úrslitakeppnin í ameríska háskólaboltanum og Jón Axel segir að það séu öll lið sem vilji spila þar og að markmið Davidson sé að komast þangað. „Ef við komumst í „March Madness“ þá ætlum við að reyna að valda eins miklum usla og við getum, ég hef fulla trú á því að við eigum eftir að gera það.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ekki ómerkari nöfn en Michael Jordan og Stephen Curry hafa komið á leiki Davidson nýlega en Jón Axel segist ekki spá í því hverjir séu á áhorfendapöllunum hverju sinni. „Ég hugsa meira um það hverjir voru að horfa á leikinn þegar honum er lokið því þegar þú ert inn á vellinum ertu ekkert að hugsa um hverjir séu að horfa og hverjir séu ekki að horfa. Það er bara eitt sem maður hugsar um þegar maður er inn á vellinum og það er hvernig maður getur hjálpað liðinu sínu að sigra leikinn.“

Jón Axel hefur verið að spila vel í vetur en segist þó geta gert margt betur, það hafi tekið svolítinn tíma að verða einn af aðalmönnum liðsins og hann sé vanari því að vera „role player“. „Það eru nokkrir leikir búnir og ég verð bara að halda áfram að spila svona út tímabilið og vonast eftir því besta.“
Leikmaðurinn knái kemur ekki til Íslands um jólin þar sem Davidson spilar leiki yfir jólahátíðina. „Það vill svo til að við förum til Hawaii að spila á jólamóti um hátíðirnar, þannig að þetta verða aðeins öðruvísi jól en ég er vanur, engin snjór bara sól og blíða.“