Leikskrá og dagatal knattspyrnudeildar Grindavíkur komin út
Leikskrá knattspyrnudeildar Grindavíkur knattspyrnusumarið 2011 er komin út og er glæsileg að vanda. Leikskráin er 48 blaðsíður stútfull af skemmtilegu efni sem tengist fótboltanum í Grindavík. Jafnframt kom dagatal knattspyrnudeildarinnar út og var því dreift með Leikskránni.
Á meðal efnis í leikskránni er ítarlegt viðtal við Ray Anthony Jónsson sem upplifði mikið ævintýri þegar hann lék með landsliði Filippseyja í vetur. Þá eru viðtöl við Óla Baldur Bjarnason, Yacine Si Salem, Önnu Þórunni Guðmundsdóttur, Ágústu Jónu Heiðdal og þjálfara meistarflokka Grindavíkur. Þá er fjalla um yngri flokkana, 2. flokk, sagt frá lokahófum síðasta árs í máli og mydum, svipmyndir eru úr starfinu, myndasyrpur frá herrakvöldi, æfingaferð til Spánar og kynning á meistaraflokkunum, svo eitthvað sé nefnt.
Leikskránni er dreift í öll hús í Grindavík, á heimaleikjum karla- og kvennaliða Grindavíkur og víðar um land allt.
Sækja leikskrá á pdf-sniði.