Leggjum upp með að einbeita okkur að okkur sjálfum
Ingvi Þór Guðmundsson leikur með Grindvíkingum í Domino´s-deild karla í körfubolta. Hann hefur farið á kostum í fyrstu leikjum liðsins en þremur umferðum er nú lokið í deildinni. Ingvi svaraði nokkrum spurningum fyrir Víkurfréttir um liðið, körfuna og veturinn.
Hvernig leggst veturinn í þig?
Veturinn leggst mjög vel í mig, við erum með gott lið og ég er spenntur að sjá hversu langt við komumst.
Hvernig hafa æfingarnar verið hjá ykkur í undirbúningi fyrir deildina?
Þær hafa verið krefjandi og við reynum að bæta okkur með hverri æfingunni.
Þú varst valinn í lið annarar umferðar Domino´s-deildarinnar hjá körfuboltakvöldi, kom það þér á óvart?
Það kom mér alveg smá á óvart en það var mjög skemmtilegt að komast í lið umferðarinnar.
Hvað leggið þið upp með í vetur og hver eru markmið ykkar?
Við leggjum upp með það að einbeita okkur að okkur sjálfum og hvað við getum gert betur til þess að efla liðið. Aðal markmiðið er að vera á okkar besta stað sem lið þegar úrslitakeppnin byrjar og halda svo áfram þaðan.
Er breiddin nógu mikil hjá ykkur?
Já, breiddin er ekki vandamál hjá okkur. Við erum með marga góða leikmenn sem allir geta hjálpað liðinu á einhvern hátt.
Hver er skemmtilegasti/erfiðasti andstæðingurinn?
Kári Jónsson.
Skiptir stuðningur af áhorfendapöllunum miklu máli?
Já, hann skiptir gríðarlega miklu máli. Okkar stuðningsmenn hafa verið mjög flottir í fyrstu leikjunum okkar.
Grindavík tekur á móti Tindastól í kvöld í Mustad höllinni kl. 20:00.