Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Laufey Íslandsmeistari í 1. þrepi kvenna
Laufey Ingadóttir, Íslandsmeistari í 1. þrepi.
Mánudagur 30. mars 2015 kl. 11:00

Laufey Íslandsmeistari í 1. þrepi kvenna

Góður árangur hjá iðkendum fimleikadeildar Keflavíkur

Íslandsmótinu í þrepum í áhaldafimleikum lauk í gær þar sem að fjölmargir keppendur frá fimleikadeild Keflavíkur tóku þátt. Þar bar hæst að Keflvíkingar eignuðust Íslandsmeistara í 1. þrepi kvenna.

Hin 12 ára gamla Laufey Ingadóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði nokkuð örugglega í 1. þrepi með einkunina 56,034, eða rúmu heilu stigi á undan næsta keppanda. Laufey varð einnig stigahæsti keppandinn í þrepinu á bikarmeistaramótinu í áhaldafimleikum í febrúar og er því óhætt að segja að hún sé að eiga frábært ár í greininni. Keflvíkingar hrepptu einnig 3. sætið í þrepinu þar sem að Hanna María Sigurðardóttir fékk einkunnina 52,735.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Keppendur frá Keflavík í 1. þrepi halda á Laufeyju Íslandsmeistara. Hanna María Sigurðardóttir (lengst til vinstri) náði 3. sæti. 

Í 5. þrepi 9 ára stúlkna lentu Keflvíkingar í 2. og 3. sæti þar sem að Katrín Hólm Gísladóttir og Melkorka Sól Jónsdóttir komust á verðlaunapall.

Katrín Hólm Gísladóttir (2. sæti) og Melkorka Sól Jónsdóttir (3. sæti)

Keflvíkingar komust einnig á pall í 5. þrepi 10 ára stúlkna þar sem að Birta Dís Barkardóttir náði 2. sæti.

Birta Dís í 2. sæti í 5. þrepi stúlkna 10 ára

Þá hreppti Magnús Orri Arnarson 2. sætið í 5. þrepi 10 ára og eldri en Magnús var í drengjaliði Keflavíkur í 5. þrepi sem að vann fyrsta bikarmeistaratitil félagsins fyrr á árinu.

Magnús Orri Arnarson í 2. sæti í 5. þrepi 10 ára og eldri.

Sannarlega frábær árangur hjá fimleikadeild Keflavíkur sem heldur áfram að eiga farsælt keppnistímabil í áhaldafimleikum. 

Viðtal við Laufeyju Ingadóttur verður að finna í næsta tölublaði Víkurfrétta.

Laufey Ingadóttir í æfingum á slá um helgina