Bygg
Bygg

Íþróttir

Landsmótið: Keflavík landsmótsmeistari í körfu
Mánudagur 9. júlí 2007 kl. 11:37

Landsmótið: Keflavík landsmótsmeistari í körfu

Körfuknattleikslið Keflavíkur í karla- og kvennaflokki máttu sætta sig við tap í úrslitaleikjum Landsmóts UMFÍ sem fór fram um helgina. Engu að síður sigraði Keflavík í heildarkeppninni þar sem ekkert lið náði jafngóðum árangri samanlagt.

Kvennaliðið tapaði fyrir Hafnfirðingum í ÍBH, sem eru Íslands- og bikarmeistarar Hauka, 47-21, og var nokkur munur á liðunum eins og tölurnar gefa til kynna.

Karlaleikurinn, þar sem Keflavík mætti Fjölni, var mun jafnari á allan hátt þar sem staðan var 39-39 eftir venjulegan leiktíma og þurfti því að framlengja eftir flugeldasýningu Magnúss Þórs Gunnarssonar sem jafnaði leikinn fyrir Keflvíkinga.

Eftir spennandi framlengingu þar sem flest stigin komu af vítalínunni voru Fjölnismenn sterkari og höfðu að lokum sigur, 47-45.

Stigahæstur hjá Fjölni var Hörður Vilhjálmsson með 18 stig og Kristinn Jónasson setti 12.

Hjá Keflavík var Magnús Gunnarsson atkvæðamestur með 16 stig og Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði 12.

 

Þá voru Grindvíkingar í 5. sæti hjá körlum. Þeir lögðu Stjörnuna örugglega í umspili, 54-37.

 

VF-mynd/Stefán - Sigurður Þorsteinsson og Kristinn Jónasson eigast við í úrslitaleiknum.

 

H: www.karfan.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn