Landsliðsmenn fögnuðu afmæli Ungmarks
Arnór Ingvi og Ingvar Jóns á æskuslóðum
Njarðvíkingar fögnuðu í gær 10 ára starfsafmæli Ungmarks, sem er minningarsjóður sem var stofnaður til minningar um Mile knattspyrnuþjálfara sem þjálfaði hjá Njarðvík á árunum 1981-1990. Heimasíða Njarðvíkur greinir frá.
Á samkomunni voru afhjúpaðar tvær myndir af landsliðsmönnunum Arnóri Ingva Traustasyni og Ingvari Jónssyni sem báðir eiga uppruna sinn hjá Njarðvík og voru þeir félagar báðir viðstaddir. Tilgangurinn með myndunum er að vekja athygli yngri leikmanna hjá okkur að með aga og dugnaði er hægt að ná langt í knattspyrnu eins og þeir félagar hafa upplifað. Þá ávarpaði Freyr Sverrisson gesti en hann þjálfaði þá báða hjá Njarðvík.
Stofnfélagar voru leikmennn sem léku undir stjórn Mile og tilgangurinn var að mynda sjóð sem gæti stutt við hin ýmsu málefni grasrótarinnar hjá Knattspyrnudeild UMFN. Tekjur sjóðsins hafa orðið til að mestu sem framlag frá félagsmönnum ásamt styrkjum frá fyrirtækjum og stofnum. Þá hafa menn gefið afrakstur að fjáröflunarverkefnum ásamt þvi að hluti af tekjum knattspyrnudeildarinnar af getraunum renna í sjóðinn. Frá stofnum Ungmark hefur félagið styrkt ýmis verkefni s.s kynningarfundi, ferðir yngri knattspyrnumanna og þjálfara erlendis til æfinga eða til að kynna sér starfsemi félaga.