Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Föstudagur 19. desember 2003 kl. 14:48

Landsliðshópur kvenna tilkynntur

Ívar Ásgrímsson, nýráðinn landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp. Hópurinn, sem skipaður er 22 leikmönnum, mun æfa á milli jóla og nýárs, en næsta sumar mun liðið taka þátt í Promotion Cup í Andorra í júlí og Norðurlandamótinu sem haldið verður í Svíðþjóð í ágúst. Einnig er stefnt er æfingaleikjum fyrir þessi verkefni.

Níu stúlknanna eru frá Keflavík, tvær frá Njarðvík og tvær frá Grindavík.

Landsliðshópurinn er annars skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Erla Reynisdóttir, Keflavík
Marín Karlsdóttir, Keflavík
Rannveig Randversdóttir, Keflavík
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík
Svava Stefánsdóttir, Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík
María Erlingsdóttir, Keflavík
Alda Leif Jónsdóttir, ÍS
Stella Rún Kristjánsdóttir, ÍS
Svandís Sigurðardóttir, ÍS
Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS
Signý Hermansdóttir, Tenerife Spáni
Sólveig Gunnlaugsdóttir, Grindavík
Petrúnella Skúladóttir, Grindavík
Auður Jónsdóttir, Njarðvík
Ingibjörg Vilbergsdóttir, Njarðvík
Helena Sverrisdóttir, Haukum
Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukum
Kristrún Sigurjónsdóttir, ÍR
Hildur Sigurðardóttir, KR

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024