Landsliðið hélt til Finnlands í morgun
Íslenska A-landsliðið í körfuknattleik hélt til Svíþjóðar í morgun og mun síðar í dag fljúga áleiðis til Finnlands þar sem liðið tekur þátt í Norðurlandamótinu.
Fyrsti leikurinn er gegn heimamönnum í Finnlandi á miðvikudag kl. 19:00 en íslenska liðinu gefst tími til að sjá Finna leika gegn Norðmönnum áður en það mætir Finnum.
„Við förum í þetta mót til þess að vinna og bíðum spenntir eftir að sjá Finnana spila gegn Noregi á morgun,“ sagði landsliðsmiðherjinn Friðrik Stefánsson í samtali við Víkurfréttir en sjö Suðurnesjamenn eru í hópnum.
Leikjaröðun landsliðsins í Finnlandi:
Miðvikudagur 2. ágúst
Finnland – Ísland
Fimmtudagur 3. ágúst
Ísland – Svíþjóð
Föstudagur 4. ágúst
Noregur – Ísland
Laugardagur 5. ágúst
Danmörk - Ísland