Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Landsbankinn og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur endurnýja samstarf sitt
Þriðjudagur 2. október 2007 kl. 10:57

Landsbankinn og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur endurnýja samstarf sitt

Landsbankinn í Keflavík og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafa ákveðið að endurnýja samstarf sitt og verður Landsbankinn aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildarinnar næstu þrjú árin, eða fram á vor 2011. Það voru Almar Þór Sveinsson, útibússtjóri Landsbankans í Keflavík, og Birgir Már Bragason, formaður körfuknatttleiksdeildar Keflavíkur sem undirrituðu samninginn.

 

,,Samstarf Landsbankans í Keflavík og körfuknattleiksdeildarinnar hefur staðið hátt á annan áratug, báðum aðilum til ánægju og heilla,” segir Almar Þór Sveinsson, útibússtjóri Landsbankans í Keflavík. ,,Það er Landsbankanum mikið ánægjuefni að hafa nú endurnýjað samninginn við körfuna í Keflavík og að vera aðalstyrktaraðili deildarinnar til ársins 2011.”

 

,,Við erum afar þakklát fyrir stuðning Landsbankans. Það er gífurlega mikilvægt að eiga gott samstarf við bakhjarla sína. Samstarfið við Landsbankans stendur á traustum grunni enda hefur bankinn staðið við bakið á okkur um margra ára skeið. Við hvetjum félagsmenn okkar og stuðningsmenn að láta bankann njóta þess,” segir Birgir Már Bragason, formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.

 

Landsbankinn hefur ávallt lagt mikla áherslu á að starfa með ungu fólki og íþróttafélögum um land allt. Með stuðningi sínum gerir bankinn íþróttafólki kleift að leggja stund á íþrótt sína af kappi. Það er að auki hluti af heildarstefnu Landsbankans að að vinna með ungu fólki og efla íþróttahreyfinguna á landsvísu.

 

Ávinningurinn af samstarfinu er gagnkvæmur. Körfuknattleiksdeildin fær öflugan fjárhagslegan bakhjarl og verður Landsbankinn aðalstyrktaraðili bæði meistaraflokka karla og kvenna og allra unglingaflokka. Samningurinn er að hluta til árangurstengdur og því geta Keflvíkingar sjálfir hækkað framlagið ef meistaraflokkar karla og kvenna vinna þá titla sem keppt er um á hverju tímabili.

 

Ávinningur viðskiptavina Landsbankans er líka töluverður. Félagar í Klassa fá frítt á alla leiki og þá munu Námufélagar sem fyrr fá helmingsafslátt á leiki karla og kvenna í Iceland Express deildinni. Þá mun Landsbankinn styrkja unglingastarf körfuknattleiksdeildar m.a. með því að bjóða þeim sem eru félagar í Klassa og Námunni að stunda æfingar frítt í einn mánuð á æfingatímabilinu.

 

VF-Mynd/ [email protected] Frá undirritun samninga í útibúi Landsbankans í gærdag.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024