Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Landsbankamót ÍRB: 5-600 sundmenn í Vatnaveröld
Þriðjudagur 10. maí 2011 kl. 10:27

Landsbankamót ÍRB: 5-600 sundmenn í Vatnaveröld

Um næstu helgi mun sundráð ÍRB halda eitt stærsta sundmót landsins. Mótið er haldið í Vatnaveröld og munu á bilinu 500-600 sundmenn synda á mótinu á aldrinum 6 – 25 ára frá 14 félögum víðsvegar af landinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Mikil stemning hefur jafnan verið á mótinu og í ár er nokkurskonar Eurovision þema í lauginni en Eurovison lög munu hljóma á milli greina og í verðlaunaafhendingum þar sem mótið hittir á Eurovisonhelgina.

Á föstudeginum keppa yngstu sundmennirnir, 8 ára og yngri, en þá er jafnan mikið fjör í lauginni og er þá endað  á okkar sívinsæla sjóræningjaleik.

Á laugardeginum og sunnudeginum synda svo þeir eldri. Það er alltaf mikil stemmning á þessu móti og mikið um að vera t.d. fara allri krakkarnir í bíó og gleðin er ávallt í fyrirrúmi.

Við viljum hvetja sem flesta til að mæta í Vatnaveröld um helgina og sjá okkar framtíðar sundfólk í lauginni, segir í tilkynningu frá ÍRB.