Kylfingurinn Forsbrand með fyrirlestur í Íþróttaakademíunni
Svíinn Anders Forsbrand, sem er talinn snillingur í því hvernig nota á fleygjárn við golfleik, verður með fyrirlestur í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ laugardaginn 10. mars. Það er Brynjar Geirsson, golfkennari, sem hefur veg og vanda að komu hans hingað til lands. Fyrirlesturinn verður opinn öllum. Forsbrand verður einnig með sýnikennslu í því hvernig á að nota fleygjárnið. Hann og Seve Ballestoros eru taldir vera bestu fleygjárns kylfingar heims.
Forsbrand, sem býr nú í Flórída, gerðist atvinnukylfingur 1981 og lék fyrst á Evrópumótaröðinni árið eftir og var með þátttökurétt á mótaröðinni til ársins 2003. Hann sigraði sex sinnum á Evrópumótaröðinni og var þrisvar á meðal 10 efstu á peningalistanum. Árið 1993 varð hann fyrsti Svíinn til að leika í öllum fjórum risamótunum á sama ári. Þá var hann aðstoðarfyrirliði Evrópuúrvalsins sem Bernhard Langer stjórnaði í Ryderbikarnum 2004.
Forsbrand heimsótti íslenska landsliðið er það var í æfingabúðum í Flórída í fyrra og sýndi þar hvernig á að beita fleygjárninu og gátu íslensku kylfingarnir ýmislegt af honum lært.
Mynd: Anders Forsbrand mætir í Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ 10. mars og heldur fyrirlestur. Á neðri myndinni má sjá Forsbrand, Bernhard Langer og Joakim Haeggman með Ryderbikarinn sem Evrópuúrvalið vann á Oakland Hills í Bandaríkjunum 2004.